Margrét Lára:
Jáh,hún Margrét,hehehhee..... Hún var að horfa á leik KR-Valur og stelpurnar voru að tala um útspörk markmanna inní þessum nýju höllum, að einstöku sinnum enduðu þær upp í loftinu á húsunum og þá ætlaði Margrét Lára að segja að það þyrfti bara að "Kontra´nn" en þá benti Margrét á að það þyrfti nú bara að "TANTRA BOLTANN" !!!!!!!!!!!!!!! HAHAHAHHAHAHAHAHHAHHAHAHAHAAAAAAA :o)
__________________________________________________
Thursday, May 15, 2003
Tuesday, April 15, 2003
Hanna Guðný:
Var að tala við einhvern heima í Eyjum þegar við vorum úti og það var verið að segja henni að þetta hafi verið í fréttum hvað við þurftum að bíða lengi og hvað ferðalagið tók langan tíma!! Og svo heyrist í Hönnu: "Marr er bara rosa frægur, kemur bara í fréttum að ferðalagið hafi bara tekið 28 sólarhringa!" já,en æfingaferðin var aðeins 7 dagar í allt, en samt lengist það bara um 28sólarhringa!!! Go Hanna!! _____________________________________________
Sara Syndrome:
Ekki mismæli - en verður samt að fylgja! Vorum að skjóta á æfingu og Sara skaut yfir og ætlaði að fara að sækja boltann, tókst ekki betur en það að hún hljóp bak við markið,steig á stöngina og rann beint á rassinn!!
_____________________________________________
Hanna Guðný:
Hanna Guðný var við bakkann á sundlauginni við Hótelið á Portúgal að fá rosa lit,hehhehee.... En allavega þá segir hún eitthvað alveg út í hróa... og segir svo: "Oh, æji ég tala stundum bara alveg upphátt!!!"
___________________________________________
Bjarni Geir:
Þó svo að Bjarni Geir sé ekki í m.fl.kv. verðum við að hafa þetta comment hérna... Við vorum búin að bíða í flugvélinni í 1 1/2 tíma og Bjarni Geir var búin að vera sofandi allan tímann, eitthvað rosa þreyttur strákurinn... Já, svo vaknar hann þegar vélin var ekki búin hreyfast eftir 1 1/2 klst og þá heyrist í honum: "Ah,flott að sofna svona og stytta ferðina svona" En neinei, þá vorum við búin að bíða heillengi og eftir að bíða helmingi lengur í vélinni og svo miklu lengur inni í flugstöð!! Aldeilis sem að ferðin styttist!
____________________________________________
Íris Sæm:
Þetta var í æfingaferð fyrir nokkrum árum og við vorum á matsölustað að fá okkur að borða og Írisi vantaði tómatsósu. Svo hún kallar á þjóninn:"Can I get some TOMATSAUCE??" hehehee...
____________________________________________
Helena:
Nú er komið að æfingaferðinni 2003 sem byrjaði alveg ótrúlega vel, þ.e.a.s. með margra klukkustunda bið á flugvellinum og í vélinni. En þar var þetta byrjað. Við vorum svo rosalega heppin eftir að hafa beðið í flugvélinni í 3klst að það var boðið okkur uppá samloku og drykk, og við spurjum Helenu hvað það væri í boði því hún var búin að fá sér, þá tilkynnti hún okkur það að það væri hægt að fá samloku með grænmeti og svo SKINKU MEÐ RÆKJUM!
____________________________________________
Karítas:
Þetta hljómar frekar skrítið svona en þetta var mjööög fyndið þegar hún sagði þetta. En það var þannig að við vorum að tala um bílslys og það var einhver gaur sem var ekki í belti og við vorum að hneikslast á því að fólk notaði ekki belti og Elva Dögg segir: "Jáh, þetta litla handtak!!" Þá heyrist í Karítas:"Ha, handbremsan??" Jáh, það væri lúksus ef það væri hægt að redda sér með handbremsunni ef maður væri ekki með belti! Það er alveg ótrúlegt hvað hún Karítas getur misskilið, og það koma alltaf einhverjir svona punktar upp úr henni!!!
_____________________________________________
Elva Dögg:
Þetta er reyndar ekki mismæli en svona hluti verður maður einfaldlega að skrifa um á netið!! Það var nú þannig á einni æfingu að Heimir sagði okkur að bera markið á einhvern vissan stað og þá var Elva Dögg með spangir á tönnunum og hún var að bera markið með okkur svo ætluðum við að setja markið niður þá heyrast einhver óhljóð í henni.... Neinei, litli klaufinn var þá búin að flækja spangirnar í markinu!!!!!!!! hahahahahhahahaha :o)
___________________________________________
Thursday, March 20, 2003
Íris Sæm:
Við vorum að skokka á æfingu, hita upp, þá segir Íris: "Oh, ég var að horfa á svo geðveikt góða mynd í gær..." og við spurjum hana hvaða mynd það hafi verið sem var svona frábær?! Þá svarar Íris(sem er nota bene með allar hljómsveitir, myndir o.þ.h. á hreinu...hehehehee...) "Æji,hún heitir The Stone Collector" En það var myndin The Bone Collector sem hún var að tala um... :o)
_____________________________________________
Olga:
Það var æfingahelgi og við vorum að bóna og spurðum Olgu og Pálu hvenær þær myndu nú flytja til Eyja og þá svarar Olga: "Við komum með Herjólfi í hádeginu í Mars." ... :o)
______________________________________________
Íris Sæm:
Íris var að byrja að æfa aftur eftir að hún átti Kristófer litla og Heimir spyr hana hvort hún ætli að vera með á útiæfingu, en þá tilkynnir Íris honum það að það væri svo kalt úti og að hún væri með svo mikla BRJÓST Í MJÓLKUNUM að hún bara gæti það ekki!! :o)
____________________________________________
Laufey Óla:
Í lok sumars fóru þeir sem unnu í vinnuskólanum sem flokkstjórar út að borða saman, og þess má geta að hálft liðið vann þar. Við sátum uppi í Koníaksstofunni á Lanterna og vorum að spjalla saman og segja brandara, og þar sem Íris er 5-aura meistari báðum við hana að koma með einn góðan, svona hljómar hann: "Vitiði hvað núllið sagði við áttuna?->Hvar fékkstu svona flott belti!! Hahahaha!" Og Laufey hlær manna mest og við spurjum hana hvort hún hafi fattað brandarann og hún segist auðvitað hafa fattað hann og er hálf skömmustuleg, og við biðjum hana þá að útskýra hann fyrir okkur og hún reynir það en fer bara að hlæja því hún fattaði hann ekkert. En svo skýrum við hann nú fyrir henni að ef það yrði sett belti á áttu og þrengt að þá myndi koma átta út úr því!! Þá heyrist í Lubbu: "En af hverju sagði hann þetta þá ekki líka við sexuna????" :o)
___________________________________________
Wednesday, February 26, 2003
Sara Syndrome:
Við vorum á Spáni í æfingaferð árið 2002, vorum í súpermarkaði að versla, þá heyrist í Söru Syndrome: "Ohhh, mig langar svo í Pascale!!" Og við litum allar við og fórum að hlæja, og Biddý var fljót að svara: "Jáh, við skulum þá bara hringja í hana!!" En þá var stelpa að æfa með okkur sem heitir Pascale, en þá var hún Sara að tala um Pascal-jógúrt, sem er borið fram aðeins öðruvísi, en þetta var nóg til að fá alla til að hlæja!! :o)
_____________________________________________
Margrét Lára og Karítas Hróðný:
Vorum á rúntinum og vorum að tala um þáttinn með Michael Jackson og erum búnar að vera að tala um hann í dágóða stund, þá heyrist í Margréti Láru: "Ég vissi nú bara aldrei að hann hafi verið svartur!!" Og þá hlóum við í smá stund af þessu, en þá heyrist í Karítas: "Ég meina, hvað var gert, var hann bara sprautaður með örðrum lit!?!"
____________________________________________
Elva Dögg:
Vorum á æfingu upp í Týsheimili og Heimir segir okkur að gera magaæfingar upp við rimla, og vera með
fæturnar í 90°... Eftir smá stund þegar við erum búnar að vera að gera magaæfingar og tala
saman heyrist í Elvu Dögg: "Hvernig komist þið eiginlega með fæturna inn í rimlana??" Þá fattaði hún ekki að snúa löppunum til að koma þeim inn á milli!!! :o)
_____________________________________________
Monday, November 25, 2002
Elva Dögg:
Við vorum að keppa á Íslandsmótinu Innanhúss og vorum að spila við RKV, svo er flautað til hálfleiks, þá heyrist í Elvu Dögg, sem er glöð í bragði: "Jæja, við unnum nú allavega!!" ...Jáh,það er vel fylgst með..
Margrét Lára:
Já, það kemur margt skemmtilegt upp úr henni... Þetta var eftir æfingu í íþróttahúsinu og við vorum að klára að klæða okkur og svona, þá byrjum við að tala um eitthvað lag sem við vorum alltaf að syngja á Spáni og þá heyrist í Margréti Láru: "Jáh, svo sungum við þetta líka bara af innyfli...!!" Þá meinti hún að við sungum þetta af innlifun!!
Margrét Lára:
Margrét Lára, Lára Dögg, Elva Dögg og Karítas voru á Subway, og voru að tala um strák sem þeim þykir svo "góður strákur", og Margrét Lára tók svo innilega undir það og sagði: "Jáhh, hann myndi sko ekki bíta flugu...!!!!!!!!!"
Monday, November 11, 2002
Sara Syndrome:
Það er ekki til miklu meiri snillingur en Sundrome-ið sjálft, og það eru til allmargar sögur af henni. En hér er ein, við vorum að keyra frá Spáni og vorum að fara til Portúgals þegar Lára Dögg segir:"Ég vildi að ég væri með svona spólu til að við gætum hlustað á cd-spilarann.." Þá heyrist í Söru:"Kanntu að tengja sollis?" Jáh, svarar Lára :). Þá heyrist aftur í Söru:"Í alvörunni, það er nefnilega spóla sko, í sjúkratöskunni,þú getur bara tekið hana!!" Þá hélt Sara að það væri bara hægt að taka hvaða spólu sem er og bara fiffað hana til.. Hehehehe!
Laufey Ólafs:
Við hittumst allar í Féló þegar HM var og horfðum þar á leiki, svo voru Lára Dögg og Stefán Braga að spila billiard á einu borði þar og svo Michelle og Kevin á öðru borði, þá kemur Laufey labbandi inní herbergið og segir:"Ohhh,I´m so boring!!" Og Michelle lítur upp og segir: "Oh,you mean bored?" Og Laufey stendur fast á sínu:"No,I´m so boring!" Þá spyr Lára hana hvort hún viti hvað hún sé að segja, þá segir Laufey:"Já, að mér leiðist!?" Neinei,þá sagði Lára henni að hún væri að segja að hún væri að segja að hún væri ógeðslega leiðinleg!! Laufey,þú ert snillingur!!
Rakel Loga:
Var að leggja kapal heima hjá skotunum, og þær spurja hana hvað hún sé að gera, og hún svarar: "I´m just playing with myself!!".....
